Hanstholm- Bergen- Torshavn- Seyðisfjörður- Akureyri
bk
Lilja
Passa krakka, ekkert mál
Ég kom til íslands í byrjun apríl og hef verið að smíða síðan þá. Var meirihluta apríl mánaðar að vinna í húsinu hjá Einari og Ingu Björk í Mið Samtúni auk þess að ná einum 15 dögum á skíðum í Hlíðarfjalli, smíðaði þá fyrir hádegi síðan skíði og smíðaði aftur um kvöldið, tær snilld. Síðan skrapp ég líka í nokkra daga til Víðis og Sigrúnar í Kópavoginn og breyttum við stofunni þeirra. Núna er ég að breyta veitingastað hérna á Akureyri og verð í því fram að mánaðarmótum og fer þá á Möðruvelli í einhvern tíma þannig að það er nóg að gera.Ég ákvað að fá mér vsk númer og prófa bara að smíða sjálfstætt og held ég að það muni bara koma vel út og eiginlega eins gott að það komi vel út þar sem ég er búin að kaupa mér helling af nýjum verkfærum og drasli.
Ég ætla líka að reyna að fá einhverja vinnu í löggunni hérna til þess að missa ekki númerið mitt en ég þarf að vinna eitthvað ákveðið mikið á hverju ári til þess að halda því.
Ég pantaði farmiða fyrir Lilju heim í síðustu viku og mun daman fara í skip þann 31.maí ásamt voffanum, hún mun samt ekki fara með Samskip eða Eimskip heldur Norrænu. Auður systir Lilju er nú ekki betur gerð en það að hún pantaði sér flug út 23. maí til þess að sigla heim með Lilju, ALDREI myndi ég fljúga út í heim með það eitt að markmiði að sigla aftur heim. En þetta var að vissu leiti gott hjá Auði þar sem að nú mun Lilja hafa félagsskap og þær geta ælt í kór og oltið um kojuna oj.
Samkvæmt siglingaáætlun munu þær sigla frá Hanstholm 31. maí og sigla til Bergen og þaðan til Færeyja og síðan til Seyðisfjarðar og koma þangað að morgni 5.júní og ættu því að vera hérna á Akureyri seinnipartinn þann dag, það er að segja ef þær verða ekki ennþá að stíga ölduna á bryggjukantinum.
Við erum búin að leigja hús til að vera í næsta árið og er það staðsett í Skriðu í Hörgárdal, nánari staðsetning er uppi á hólnum norðan og ofan við fjósið. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvort ég sé ekki ánægður með að búa út í sveit og ég held meira að segja að Lilju hlakki líka til að prófa að búa þar. Hér með bíð ég líka öllum sem vilja að koma í heimsókn og fá gistingu enda er gistipláss fyrir alveg mökk af lýð í húsinu.
Lilja er búin að fá vinnu á teiknistofu á Akureyri í sumar en í þessum rituðu orðum er hún stödd í Berlín með einhverjum skipulagskúrs frá danska landbúnaðarháskólanum en í þeim skóla er hellingur af hvanneyringum og gat hún laumað sér með. Ekki veit ég hvað þau eru að gera þarna en hún mun sjálfsagt segja eitthvað frá því þegar hún kemur til baka.
Ég get eiginlega ekki endað þessa færslu kæru vinir án þess að nefna eitt. Um daginn var hérna könnun á síðunni þar sem spurt var hvaða tegund af dráttarvél Lilja ætti að kaupa ef hún yrði bóndakona. Þetta er afar einföld spurning og auðveld í svörun. Þið eruð öll, flest, sum, nokkur ágætisfólk en niðurstaðan sýndi þó að þið hafið ekki HUNDSVIT á dráttarvélum. Nema þá að Kalli hafi slysast hérna inn og kosið oft, þarf að kanna það.
Hafið það sem allra best
Mbk
Vaggi
Ófærð 10. maí?!
sól og meiri sól
planið er að vera dugleg að fara út að skokka og sitja síðan úti á svölum með bók og sandwichglass (sænskur ís) í kvöld er svo grill hjá skólanum og á morgun ætla ég til Guðrúnar og Valda að elda e-ð gott. Á fimmtudaginn koma svo Ása og Rannveig hingað yfir svo ég ætla að tjilla í bænum með þeim í 23 stiga hitanum og sólinni- næs! (já Inga Jóna ég verð bara að fá að láta ykkur vita þar sem ég fékk ekki mikinn vetur hér í Svíþjóð-þú myndir líka monta þig :P )
Síðasta laugardag eyddi ég með Örnu Dögg í yndislegu Köben, þetta varð algjör túristadagur þar sem ég fékk lánað hjólið hans Eiríks og við hjóluðum um allt- fyrsta skipti sem ég hjóla í köben og það svínvirkar! En við fórum á arkitektasýningu, í Kristjaníu (þar sem Arna sýndi mér hvar hún átti sín bernsku brek) settumst á kaffihús í Kristianshavn og röltum um hliðargötur Striksins og kíktum á antikmarkað. Ég fékk svo að gista í stórborgaríbúðinni þeirra á 6. hæð eftir að hafa borið upp eitt stykki fataskáp sem við fundum á götunni fyrir framan íbúðina :) Alltaf þægilegt að heimsækja þau- takk fyrir góða helgi Arna mín!
Aðrar fréttir:
ferðaplanið okkar hefur breyst heldur betur- eins og við mátti búast þar sem bara svítuklefi var laus í norrænu og var því ekki að borga sig. Við komumst svo að því að það er orðið helmingi dýrara að senda bílinn með frakt heldur en í haust! skil það ekki alveg, svo ég býst við að fara með norrænu (kannski alein) þann 31. maí. En það er samt jafn dýrt fyrir 1 manneskju með bíl eins og 2. En Vaggi er bara kominn stórt smíðaverkefni og sér ekki fram á að komast út - svo ég auglýsi eftir ferðafélaga ef einhver hefur áhuga á að keyra með mér frá Köben til Hanstholm og sjá Bergen og Færeyjar á leiðinni heim! En anyway, ég hef bara með mér bíómyndir í tölvunni, bók og prjóna. Ég hlakka samt til að sjá Færeyjar þar sem maður eyðir einum degi þar í landi...
en svo getur verið að þetta plan breytist í vikunni þar sem ég er ekki búin að panta... en yfir og út
Berlín framundan
En Valborgmässa var á miðvikudaginn (sem er kannski e-ð kristilegt líka, ég hef ekki hugmynd) en þá fagna stúdentar á þann skemmtilega hátt að detta hressilega í það í einhverjum görðum- ég hélt þetta væri meira festival eins og verslunarmannahelgin heima, en nei þau eru aðallega bara full og eldri stúdentar klæða sig upp og syngja í kórum um allan bæ. Svo er oft vorball þar sem þau hin sem kunna sig í drykkjunni klæða sig upp í fínasta púss og fara á dansleik. En ég náði sem sagt að plata Guðrúnu og Valda til að kíkja með mér til Lund þar sem þessi "hátíð" átti að vera, en það var ekkert að gerast þar svo þetta varð bara hin fínasta túristaferð í staðinn. Ég hef þá allavega komið til Lund núna, ekki seinna vænna.
Í gær var verkalýðsdagur hér eins og annars staðar en í skólanum var bændadeildin með keppnina sína, Svíar á móti Skánverjum sem var bara gaman að fylgjast með. Svo heppilega vildi til að eftir keppnina byrjaði að ausrigna (getur maður sagt það á íslensku?) svona mikla dembu hef ég bara aldrei séð! en ekki veitti af fyrir gróðurinn þar sem búið er að vera 15-20 stiga hiti og sól síðustu tvær vikur.
Nú svo ætlaði ég heldur betur að vera dugleg að læra í dag en bókasafnið er bara lokað, af því, hmm það er 2. maí eða 3. í Valborgarmessu? en það er allavega lokað svo ég sit hér fyrir utan bókasafnið í sófa og kíki á netið...
En ein frétt fram í tímann (þar sem yfirleitt gengur ekkert upp af því sem við plönum) en þá var ég að bóka miða til Berlínar þann 13. maí með krökkunum í köben, þetta er í raun skólaferð hjá þeim sem er bara snilld af því þá er komin plönuð dagskrá öll innan míns áhugasviðs- gerist ekki betra!
En engar fleiri fréttir í bili
hejdå
Mmm yndislega vor
En yfir í annað, þó veðrið hafi verið gott er ég búin að vera dugleg að læra og ætla að reyna að standa mig í þessari ritgerð þó enskan mín sé ekki upp á marga fiska- þá er gott að eiga tölvuorðabók.
Þann 30. apríl verður Valborgarfest, þá gleðjast stúdentar um alla Svíþjóð og ég held að þetta sé stærst í Uppsala og Lundi, svo ég ætla að skella mér til Lund í fyrsta skipti :) 1. maí verður svo skólamót bændadeildar þar sem svíar keppa á móti skánverjum, held þetta séu svona litlu ólympíuleikarnir eins og MA-ingar kannast við. Svo spennandi tilbreyting frá hversdagleikanum framundan
yfir og út
/L
Heimþrá
Það er ekki laust við að maður fái heimþrá annað slagið... btw er að vinna
að verkefni um miðbæinn svo ég rakst á þetta á heimasíðunni
12 ástæður til að búa á Akureyri
1. Á Akureyri er barna- og fjölskylduvænt umhverfi
2. Veðurfar er gott, sólrík sumur, snjór á vetrum
3. Stutt frá heimili til vinnu eða skóla
4. Nálægð við náttúruna og sveitina
5. Brynjuísinn fæst hvergi annars staðar á landinu
6. Nálægð við fjölskyldu og vini
7. Lítil hætta vegna glæpa eða ofbeldis
8. Skólabærinn Akureyri - góð menntun
9. Úrval menningarviðburða
10. Góð heilsugæsla
11. Gróðursælt í hreinum bæ
12. Góð íþrótta- og útivistaraðstaða
rafmagnsbilar
Jeg er buin ad vera i afslappesli her i køben um helgina svona adur en ritgerdartørnin byrjar næstu thrjar vikur- otrulega næs!
Rakst a grein um rafmangsbila sem er verid ad reyna ad koma a markad herna, einstaklingsbill sem kemst uppi 60 km/klst og plass afturi fyrir barn eda sma farangur. Thessir bilar eiga ad endast 60-90 km a hledslu og eru nanast hljodlausir. Virkar otrulega hagstæd og umhverfisvæn græja! En min spurning er hvort thetta er eigi heima uti a vegum med venjulegum bilum, hversu mikid øryggi er i theim yfir høfud? Thessir bilar eru svosem pottthett øruggari en vespurnar sem eru utum allt en mer finnst thar lika vera a ovissumørkum thar sem folk keyrir thær a hjolastigum og a gøtunum :/
CityEL - sikker i trafikken
Der er taget hensyn til sikkerheden. CityEL er konstrueret med et let, men meget stærkt, selvbærende plastkarosseri - en såkaldt sandwichkonstruktion: to sammenlimede plastskaller med et mellemrum, der er udfyldt med PUR skum.
En kraftig sikkerhedsbøjle beskytter såvel fører som evt. passager ved uheld. CityEL er naturligvis også udstyret med sikkerhedssele - og kan yderligere forsynes med 4-punkt børnesele.
Eg held samt ad thessir rafmagnsbilar seu komnir til ad vera og bara spurning hvenær their verdi alls radandi i borgunum... hjol eru samt malid og sviar og danir eeeelska hjol, brekkurnar a Akureyri eru bara ekki mitt uppahald, svo thad er spurning hversu lengi eg endist ad hjola i sumar :S
/L
Garðpartý
En þessi vika er búin að líða nokkuð hratt, þó Hrönn hafi viljað sleppa einum degi í vikunni þá tókst það ekki og það er því ennþá fimmtudagur:P
Annars ætla ég að reyna að læra einbeitingu og fara að skila einhverju af mér, ég er svolíltið góð í að stökkva úr einu í annað, svo það er að vissu eiti gott að vera netlaus heima ef ég þarf að læra. Svo er súpukvöld í kvöld hjá bændadeildinni og þá koma þau í stofuna mína og syngja og klappa og stappa eins og brjálæðingar í allt kvöld, jei! Held ég nenni samt ekki að vera með þar sem ég kann ekkert þessi lög sem þau eru að syngja, en já ég held að súpan sé bolla sem sagt...
Ein af ástæðunum fyrir einbeitingaleysi er sú að við höfum ákveðið að taka norrænu 14. júní og höfum því tvær vikur til að ferðast á bílnum. Þetta ferðalag átti upphaflega að vera ein vika en það er nokkuð knappur tími. Svo ég er að spá hvert væri gaman að fara, Holland og Belgía eru ofarlega á listanum. En ég held ég kaupi mér túristabækur og skipuleggi þessa ferð aðeins. Það hefur sýnt sig að óskipulögð ferðalög eru ekki að gera sig hjá okkur.
Já og svo stoppum við tvo daga í Færeyjum á meðan Norræna tekur einhvern krók, svo það er svolítið spennandi!
En yfir og út í bili...
ætla til Köben um helgina, og svo er spáð bongó blíðu hérna í næstu viku!
/L