Ađalvalmynd

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Eigum viđ ekki ađ fá okkur hund til ţess ađ hafa í sveitinni?

Innskráningar kubbur

Skattleg heimilisfesta

15. apríl 2008 klukkan 10:46
Skattleg heimilisfesta!
Já alltaf lærir maður ný orð og það íslenskt í þetta sinn. Ég ætla samt ekki að útskýra þetta betur en svo að sem námsmaður í útlöndum á maður rétt á uppsöfnuðum persónuafslætti með því að vera með skráða skattlega heimilisfestu! Ég er sem sagt að athuga hvort ég geti fengið það skráð á skattframtalið mitt og svo þarf auðvitað að senda alls konar blöð, frá skólanum og skattinum hér úti, bla bla bla
af hverju þurfa hlutirnir að vera svona flóknir?
/L

ađ búa á heimavist

08. apríl 2008 klukkan 09:57
Jeminn eini, það er ekki gert fyrir alla að búa í korridor... sumt fólk getur bara verið svo óendanlega óþolandi! og það versta er, að ég held að þeim finnist þau vera rosa skemmtileg. Þannig er það að ég bý núna á svía heimavist með mitt eigið herbergi og baðherbergi (sem betur fer) og deili svo stofu og eldhúsi með hinum á ganginum. Svíar eru samt mjög snyrtilegir og tillitsamir í umgengni svo ég get ekki kvartað, en það er svona roooosalega ástfangið og rooosalega óþolandi par sem býr þarna líka og virðist aldrei vera í skólanum því þau eru alltaf frammi og helst e-ð að syngja, stangast á, slefast og ég veit ekki hvað og hvað.

Ekki nóg með það því ég kom í skólann í dag og kom mér fyrir í tystrummet, þar sem enginn var og ætlaði að fara að lesa, en kom þá ekki óþolandi gaurinn þangað inn! Djíses ekki hægt að losna við þetta lið, en sem betur fer má ekki tala þarna inni svo ég lifi þetta af :P

Myndir

03. apríl 2008 klukkan 12:29
Jæja mér tókst að setja inn ansi margar myndir og smá texta með síðan um páskana :)
/L

Vorvindar

30. mars 2008 klukkan 12:15
Si si, Vaggi er búinn að bóka flugið sitt til Íslands og fer á þriðjudaginn. Ég er ekki búin að koma mér fyrir í herberginu ennþá, það er eins og eftir loftárás...
Kúrsinn virkar ágætur og kennarinn er algjör snillingur, maður frá New York sem er reyndar búinn að búa í Köben mjög lengi og er með frábæran húmor. Ég er með krökkum alls staðar að í bekk og mörg þeirra eru frá Slóvakíu og svo er ég mikið að spjalla við stelpur frá Austurríki og Kanada, ég á vonandi eftir að geta hangið með þeim e-ð um helgar en flestir búa hér í Alnarp á skólasvæðinu. (útlendingarnir virðast alltaf vera settir sér, því ég er á svía heimavistinni í Lomma... skrýtið)

En um helgina fórum við til Köben að kíkja á Ingu Jónu og co og Rannveigu og co. (NB já það má víst segja að þau séu orðin fyrirtæki með öll þessi börn ;)

En við komum við í bænum á leiðinni yfir brúna í gærkvöldi og vorum á Rådhusplatsen þar sem fullt af stjörnuáhugamönnum voru með risa kíkana sína að skoða stjörnunar og við fengum á kíkja á Satúrnus, sem var ótrúlega magnað. Svo voru öll ljós slökkt kl 20 en bílljós lýstu því allt upp í staðinn. Það er ekkert sambærilegt við að fara bara út í móa á stjörnubjörtukvöldi heima... heima er best (náttúrulega fyrir utan hagkerfið!)

En nóg í bili,
farin út í ljúfan vorvindinn
/L

La vita e bella

26. mars 2008 klukkan 20:22
Þá erum við komin til Lomma og Lilja byrjuð í skólanum. Hún fékk herbergi á nemendagörðunum í gær og er það ágætt nema að það er ekkert internet sem er stór galli.
Vaggi ætlar að fara heim til Íslands á næstu dögum en eins og hann er ákveðin, þá er ekki alveg ljóst hvort það þýðir á laugardag eða miðvikudag en það mun bara koma í ljós.
 
Páskarnir voru í einu orði sagt bara Frábærir. Vaggi lagði af stað á voffanum frá Köben á miðvikudeginum fyrir páska og keyrði til Innsbruck. Fyrstu nóttina gisti hann hjá Magga Villa og Heiðdísi í Óðinsvé, síðan keyrði hann í einum rikk á fimmtudeginum til Innsbruck og gisti þar í bílnum. Föstudaginn var hann síðan að þvæla um og skoða Innsbruck og endaði síðan á tjaldstæðinu í Sölden þar sem hann gisti aftur í bílnum. Á laugardaginn flaug Lilja frá Stokkhólmi til Munchen og tók lest til Innsbruck. Auður kom einnig með lest til Innsbruck frá St. Pölten og hittumst við því öll seinnipart á laugardeginum í Innsbruck. Á laugardagskvöldið ókum við yfir Brennerskarðið og yfir til Val Gardena þar sem beið okkar íbúð og sex dagar á skíðum. Við vorum mjög heppin með veður og færi. Fyrsta daginn var skýjað og snjókoma en það var fínt því færið var þá bara enn betra á degi tvö þegar að það var heiðskýrt og sól. Síðan var heiðskýrt og sól restina af dögunum nema síðasta daginn, þá var skýjað. Svæðið þarna er alveg geggjað flott og það er endalaust af lyftum og góðum brekkum. Við skíðuðum í 4-7 tíma á dag og nokkuð stíft en komumst samt ekki yfir næstum því allt svæðið. Á laugardaginn síðasta lögðum við síðan af stað til baka og fórum þá gamla veginn yfir Brennerskarðið og skoðuðum bæina á leiðinni, mjög fallegt og flott. Auður tók síðan lestina frá Wörgl seinnipartinn eftir að við höfðum farið í sundlaug sem var með nokkrum rennibrautum og öldulaug, mjög gaman. Við keyrðum síðan áleiðis til baka með viðkomu í ólympíuþorpinu í Munchen. Í einhvejum smábæ norðan við Munchen gistum við síðan á hóteli og ókum síðan til Köben á sunnudeginum.
Við munum henda inn myndum úr ferðinni á næstu dögum og segja betur frá þegar meiri tími er en eins og þið vitið er Lilja í fullum skóla og Vaggi á fullu að slaka á þannig ekki er mikill tími aflögu. Einnig viljum við að lokum þakka Guðrúnu Bjarna eða Guddu Bé fyrir afnotið af internetinu og kökuna. Þar til næstVaggi og Lilja

That's it!

14. mars 2008 klukkan 21:40
Nú kveð ég Uppsala að sinni, ein mest sjarmerandi sænska borg sem ég hef kynnst... Vorið er á næsta leiti, en veturinn er líka að byrja fyrir mér í ítalska snjónum :D Påsklov, ohhh vad skönt!

Annars gekk kynningin fyrir bæjarráðs mönnum og skipulagsfræðingum vel, skemmtilegt að taka þátt í svona alvöru kynningu, ég lét mér þó nægja að sitja hjá og fylgjast með í pallborðsumræðum. En gaman samt...

Nú er það muffins og mjólk áður en ráðist verður á baðherbergið og klárað að þrífa eldhúsið... flug á morgun kl 12

óver and át
L

Two to go

13. mars 2008 klukkan 12:10
Í dag er hangsi dagur, þar sem ég ætla að reyna að laga aðeins stutta ritgerð sem við áttum að skila inn í annað skiptið en ég hef nú ekki gríðarlegan metnað fyrir henni, úps, já ég vil bara fá þennan áfanga metinn enda eru engar einkunnir gefnar- það er nú til að ýta undir ennþá meira metnaðarleysi. En já á morgun verður svo farið til Enköping að kynna aðalskipulagið okkar fyrir ráðamönnum- sjæse... það hlýtur að reddast með minni bjöguðu sænsku. En það sem er meira spennandi er að þá á ég bara eftir að pakka þessu smotteríi sem er eftir og snyrta til áður en ég flýg til Munchen- vúhe!

Vaggi gisti hjá Magga Villa í Odense í nótt og er líklega farinn af stað suður eftir núna enda ekki seinna vænna. Hann nær svo kannski í mig á flugvöllinn í Munchen eða ég tek lest til Innsbruck. Þar tökum við Auði sys uppí og brunum yfir Brenner skarðið til Val Gardena. Ég er búin að kíkja ansi oft á live myndavélarnar en það er nánast hægt að sjá hvað fólk er að borða á veitingastöðunum- maður verður að passa sig að vera ekkert að bora í nefið fyrir framan alheiminn :P Núna hlakka ég bara óendanlega til að komast í sólina og snjóinn, það er meira að segja búið að snjóa í vikunni svo snjórinn og sólarvarnarbrúsinn bíða eftir okkur, úje!

Eeeeen bara tveir dagar eftir,
yfir og út
L

sei sei

11. mars 2008 klukkan 23:24
Vissir þú að visa notast við sína eigin gjaldmiðilstöflu sem breytist daglega og er að sjálfsögðu töluvert hærri en almennt gengi gjaldmiðla?? Til að mynda var sölugengi evrunnar í 105,51 í dag en hjá visa stendur hún í 107,7532

Já alltaf lærir maður eitthvað nýtt og aldrei er það manni til hagsbóta

Köbenhavn og Uppsala

10. mars 2008 klukkan 10:38


Á fimmtudaginn fórum við frá Uppsala og keyrðum til Malmö, við vorum átta tíma á leiðinni og gekk bara ljómandi vel. Við gistum hjá Guðrúnu um nóttina og heimsóttum síðan Hrönn á föstudasmorguninn og fórum í Outside áður en haldið var yfir brúnna. Við ætluðum að kíkja á herbergið í Lomma en það var ekki hægt fyrr en seinnipart á föstudag þannig að við bara slepptum því. Leiðin frá Uppsala til Malmö er 680 km, þar af voru 640 þeirra á þjóðvegi sem hefur tvær akreinar í hvora átt, það gerði það að verkum að maður ók bara á 110 alla leið nánast án þess að slá af. Algjör snilld, ekki svona tveir plúss einn vegur sem stuðlar að stressi og kappakstri. Ég ætla að skrifa sér færslu um skoðanir mínar og muninn á 2+2 og 2+1 vegi einhvern tímann.
Á laugardaginn fór ég síðan með Valda mági mínum að leika með loftbyssur. Það er svæði rétt utan við Köben þar sem búið er að útbúa vígvöll inni í skógi þar sem má skjóta, það voru örugglega 50 manns þarna og síðan var bara skipt í lið og byrjað að berjast. Þetta var alveg gríðarlega gaman og ótrúlega flott aðstaða sem búið er að byggja upp þarna.  Slóð á svæðið er hér og þar eru einnig nokkrar myndir frá því á laugardag.
Á laugardagskvöldið fórum við síðan og hittum nokkra hvanneyringa heima hjá Örnu og Eiríki, fórum öll út að borða og sátum síðan og sötruðum öl og spjölluðum fram á nótt. Við gistum síðan hjá þeim um nóttina. Lilja flaug svo aftur til Uppsala í gærkveldi og verður þar þessa viku að klára hópaverkefnið og kynna það. Á laugardaginn næsta flýgur hún síðan frá Stokkhólmi til Munchen og ég mun síðan hitta hana annað hvort þar eða í Innsbruck í Austrrríki. Auður kemur líka á laugardaginn til Innsbruck og síðan keyrum við til Ítalíu og förum á skíðavæði sem heitir Valgardena. Við erum búin að panta íbúð í viku í bæ sem heitir Cristina og tilheyrir svæðinu og verðum þar í 7 daga. Ég ætla að leggja af stað á morgunn og dunda í gegnum Þýskaland og kannski að koma við á einu eða tveimur skíðasvæðum ef allt gengur vel.
Verst hvað Evran er óhagstæð en gengið er 105 núna, til samanburðar má geta þess að gengið var 99 í byrjun síðustu viku. Stefnan var að kaupa sjónvarp í Þýskalandi en þau plön gætu breyst eða frestast ef gengið verður svona hátt en það er svo sem ekkert í fyrsta skipti sem einhver breyting verður á áformum okkar Hlæjandi.
Þegar ég les yfir færsluna sé ég að ekkert er minnst á hana Rannveigu systir. Þess ber að geta að hún er þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að hýsa okkur/mig núna, gefa mér að borða og halda mér félagsskap. Það er mjög gott að vera hjá henni og gefur manni mikið sjálfstraust þar sem nóg er að spyrja Hauk son hennar hver sé bestur og hver sé sterkastur í heimi og þá er svarið alltaf Vaggi frændiHlæjandi. Og þess ber að geta að hann var ekki píndur eða kitlaður þangað til hann sagði þetta.  Minnir migSaklaus

Mbk
Vaggi

Nú er ég farinn

06. mars 2008 klukkan 10:24
Jæja, þá er þetta síðasti dagurinn í Uppsala. Þegar Lilja er búin í skólanum í dag leggjum við af stað til Köben. Ætlum að stoppa í Malmö í kvöld og fáum að gista hjá Guðrúnu í nótt og ætlum síðan að brasa aðeins þar í fyrramálið áður en við förum yfir brúnna.
Ég verð nú að viðurkenna það að ég er eiginlega búin að fá nóg af þessum tíma hér sökum aðgerðarleysis og vona að það sé bjartara fram undan þarna suður frá. Við erum samt búin að gera alveg helling, þrjú skíðaferðalög, fara til Noregs, Lilja búin að fara til Kiruna og við búin að skoða nokkuð vel allt hérna í kringum okkur, Stokkhólm og sveitirnar. Og síðan náttúrlega það sem mestu skiptar að Lilja er að klára þennan áfanga í skólanum (húrra fyrir henni veivei).
Ég er búin að pakka í bílinn og á nú bara eftir það hörmulega verk að þrífa íbúðina. Ég ætla sko að fá mér aupair til að sjá um þessi heimilisverk þegar ég verð búin að koma mér fyrir til framtíðar. Ég fékk alveg nóg í æsku af því að þrífa herbergið mitt og skítin eftir systur mínar. Minnir líka að ég hafi verið eina barnið sem hjálpaði mömmu við heimilisverkin og þá skipti engu hvort þrífa ætti klósettið eða herbergi systranna, gekk bara í allt. Eiginlega ótrúlegt að ég skuli ekki vera hommi.

Jæja Danmörk, Þýskaland, Austurríki og Ítalía bíða, hafið það sem allra best.
Mbk
Vaggi

Klukkan

Skemmtilegar síđur

Skíđasvćđi sem viđ höfum veriđ á