Ađalvalmynd

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Eigum viđ ekki ađ fá okkur hund til ţess ađ hafa í sveitinni?

Innskráningar kubbur

Fín helgi, skíđi og heimsókn

03. mars 2008 klukkan 19:03

Við ákváðum að leggjast í ferðalag á fimmtudaginn og var ferðinni heitið til Ås í Noregi með viðkomu á skíðasvæði.

Við lögðum af stað seinnipart á fimmtudag eftir að hafa fundið skíðasvæði á netinu til að fara á. Svæðið stendur um 100 km norðan við Karlstad við bæ sem heitir Torsby.

Til Torsby eru u.þ.b. 400 km og komum við þangað um klukkan 23 um kvöldið. Að sjálfsögðu gistum í voffanum á tjaldstæði bæjarins og jafnaðist það á við 4 stjörnu hótel. Á föstudagsmorgunin fórum við á skíðasvæðið Hovfjället og skíðuðum þar fram eftir degi. Þetta er lítið skíðasvæði með sex lyftum en þær voru frekar lélegar, eiginlega bara mjög lélegar. Þetta var samt hin ágætasta skemmtun og var færið fínt og veðrið gott. Þetta skíðasvæði bætist því nú á listann yfir þau skíðasvæði sem við höfum komið á en við munum örugglega ekki fara þangað aftur sökum þess hve aðstaðan er léleg.

Seinnipartinn á föstudaginn ókum við svo til Ås í Noregi en það er um 200 km frá Torsby. Það var mjög gaman að keyra þá leið þar sem við vorum bara á sveitavegum og mjög fallegt að fara um. Við keyrðum í gegnum Osló en sáum nú ekki mikið af borginni þar sem komið var myrkur en við fengum hins vegar að kenna á vegatollum norsara og það tvisvar, fyrst þegar við nálguðumst borgina þurftum við að borga vegatoll og síðan aftur þegar við komum inn í borgina. Þeir eru nú samt hófsamir í verðinu þannig að þetta gerði nú ekki mikið til nema að maður þarf að finna ákveðnar bensínstöðvar til þess að geta borgað gjaldið og það var aðeins snúið en tókst þó að lokum.

Þegar við komum svo til Ås (sem stendur c.a. 25 km sunnan við Osló) tóku heiðurs”hjónin” Ragnar og Hrafnhildur á móti okkur. Við dvöldum síðan hjá þeim fram á sunnudag. Það var alveg meiriháttar að koma til þeirra og þau sýndu okkur skólasvæðið og bæin og fóru með okkur í skoðunarferð til Dröbek sem er nágrannabær og alveg svakalega fallegur. Á laugardagskvöldið fórum við á pizzastað niður í bæ og eyddum síðan restinni af kvöldinu í að spila Catan, ég ætla ekkert að fara að segja hver vann þar sem það gæti talist grobb  Hlæjandi

Á sunnudaginn lögðum við af stað heim á leið um tvöleitið eftir að hafa borðað mjög gott íslenskt lambalæri hjá Ragnari og Hrafnhildi. Við vorum síðan komin heim til Uppsala um klukkan 22 í gærkvöldi eftir að hafa ekið 12-1300 km frá því við lögðum af stað á fimmtudag.

Hafið það sem best
Vaggi

Spurning dagsins

25. febrúar 2008 klukkan 18:40
Hver annar en Jolli hafði svarið við síðustu spurningu, enda mikið viskunaut þar á ferð. Rannsý hafði þó svarið við helming spurningar svo hún fær eitt stig.

Nú er það komið að mér að leggja fram spurningu og hún er svona: hvað er fyrirbærið bamboozled? (engar vísbendingar að þessu sinni)

/L

ps
nýjar myndir á flickr

Ţetta hefst međ smá bjartsýni

23. febrúar 2008 klukkan 16:48
Enn einn laugardagur til leiðinda. Ég byrjaði daginn á því að vera ótrúlega dugleg að læra fyrir kynningu sem er á mánudaginn, en svo leiddist þetta út í meira hangs og Vaggi var alveg að klepra, sem gerir mig þá líka frekar leiðinlega á móti býst ég við... en þetta hefst allt saman og við erum farin að telja niður í flutningana þann 6. mars þar sem Vaggi hefur hugsað sér að eyða heilli viku í að pakka niður svo þetta styttist. Ég er svo farin að kíkja á stjörnuspánna annað slagið, stelpurnar gera það svo oft í kaffinu að lesa stjörnuspá allra.

Sporðdreki: Stundum verður þú að leggja mikið á þig til þess að ryðja veginn fyrir sjálfan þig. Ekki núna. Minna er meira. Þetta hefst á bjartsýninni.

Fannst þetta svo viðeigandi, en hafið góðan dag
kveðja frá rokinu og árstíðaleysunni hér í Uppsala,
Lilja

JR

22. febrúar 2008 klukkan 21:36
Hei
Lilja var búin að pikka inn algjöra níð grein á minn kostnað sem hún hótaði að setja inn ef ég myndi ekki pikka þannig að ég ákvað að það væri betra að setja smá inn heldur en að þurfa að sitja undir því sem hún var búin að pikka.

Hér er smá getraun: Titill færslunar tengist persónu úr kvikmynd. Spurninginn er: hver er persónan, hver leikur hana og úr hvaða kvikmynd er hún?
Sá sem vinnur fær en stor stark við tækifæri.

Annars er nú ekki mikið að frétta hjá okkur nema að við erum orðin frekar óþreyjufull að komast á skíði og ferðast um. Lilju langar í ný telemarkskíði og þræðum við núna allar sportvörubúðir sem við finnum í leit að hinum einu réttu.

Frúin stundar einnig skólann stíft og dvelur þar allan daginn að vinna hópaverkefni sem á að skila fyrir páska (eitthvað voða mikið skipulagsverkefni sem hún kannski segir frá seinna), þegar hún svo kemur heim eftir skóla á kvöldin pratar hun svenska við mig, fattar örugglega ekki strax að ég sé íslenskur. Ef ég svo svara henni þá fattar hún alltaf, skil samt ekki hvernig Brosandi

Þar sem ég er nú mikill tölvukall og er búin að læra að "vafra" um netið þá fann ég þessa síðu . Þarna getur maður kannað hversu hratt maður getur pikkað og æft sig, algjör snilld. Ég prófaði og náði 70 punktum á mínútu en það gera 23 orð og þar af 21 rétt ritað og tvö með villum.
Einnig er ég búin að finna draumaleikfangið en það má sjá á r. Vá hvað þetta hlýtur að vera gaman.
Síðan fékk ég sendann fyndinn söng um daginn en þar er móðir búin að setja allt röflið saman í texta og flytur af miklum móð.

Að endingu má síðan geta þessa að við sóttum um lóð á Akureyri um daginn. Úthlutun fór fram í dag og fengum við ekki, það er svo sem ekki slæmt þar sem við erum ekki alveg til í að byggja né erum viss um hvar við verðum á næstu árum.

Meira hef ég ekki um málið að segja nema að ósk mín er sú að þið hafið það sem allra best.

Mbk
Vaggi

Vatnsmýrinn vs. Dubai

20. febrúar 2008 klukkan 19:53
Ég er ánægð með hvað fólk er áhugasamt um skipulagsmálin á Íslandi, enda snertir það alla- og þá ekki síður kynslóðirnar sem taka við skipulags,,slysum"/,,snilldum" okkar. Hrafn Gunnlaugs er líklega að hrissta aðeins upp í umræðunni enn og aftur, en mér finnst nú takmörk fyrir því hversu ýktar hugmyndir eigi að leggja til. (Nú hlær Vaggi, þar sem hann elskar að kveikja upp í fólki og er alls ekki fylgjandi glerháhýsum, þó hann hafi lýst því yfir við einhverja). En það verður að sníða sér stakk eftir vexti og klæða sig eftir veðri- ef það er hægt að yfirfæra það á skipulag... er veðurfarið það sama hér og í Dubai? hvað með sólarstundir og hnattstöðu? eru jarðfræðilegar aðstæður svipaðar? hvað með menningarhætti og framtíðarsýn borgarinnar og landsins?viljum við bara fá alþjóðlega milljónamæringa hingað til að spóka sig á blankskónum á Íslandi í Vatnsmýrinni, fjúkandi inn í næstu limmósínu, eða á þetta allt að vera innangengt? og svo fá þeir ferska íslenska fjallaloftið sent á kútum og selt á barnum- haha, sé það ekki alveg fyrir mér...

Vor í lofti

17. febrúar 2008 klukkan 15:20
Í gær skelltum við okkur til Stokkhólms eftir langan sofmorgun, en Vagg dettur alltaf e-ð svona í hug á síðustu stundu svo við þeyttumst á lappir og vorum komin í höfuðborgina uppúr hádegi. Ég vildi ólm fara og skoða skógarkirkjugarðinn sem er hannaður af Gunnar Asplund árið 1935, þar sem hann hreinsaði náttúrulegan skóg af öllum undirgróðri og lagðir voru óreglulegir grafreitir í skóginum- ótrúlega magnað. Í dag er skógurinn orðinn svo stór að það eru strætóstoppistöðvar um garðinn. Í einum skógarlundinum má dreyfa ösku en annars eru nýlegri grafreitir þétt upp við hvorn annan í línulegri röð, annað en í elsta hlutanum. Ég gat nú ekki farið frá Svíþjóð með landslagsarkitekagráðu án þess að hafa farið þangað, enda geri ég ráð fyrir að þetta verði síðasta Stokkhólmsferðin í bili- svo ég er voða þakklát Vagga sísvanga fyrir að hafa farið með mér nánast á fastandi maga (hann flýtti sér svo mikið að hann gat ekki borðað nóg í morgunmat). Dagurinn fór svo í rölt um búðir í leit að gallabuxum á kallinn en ekkert gekk enda er fáránlegt tískusnið á gallabuxum hérna núna þar sem allir eru níþröngum niðurmjóum gallabuxum, ekki spyrja mig hvernig fólk kemst í þetta...

Í dag bráðnaði snjórinn í æðislegri vorsól og logni svo við skelltum okkur út að hjóla og prófa BMX brautina sem Vaggi fann um daginn- geðveikt gaman og ótrúlega erfitt... það verður sko farið út að skokka reglulega í vor og hrist af sér slenið.

En nóg um það- góðar stundir gott fólk
ég er farin að baka brauðbollur
/Lilja

Bilađ

17. febrúar 2008 klukkan 10:05
skil ekkert í þessu, síðan er bara ekki að virka

15 febrúar

15. febrúar 2008 klukkan 21:18

Hæbb, ætli það sé ekki best að ég pikki smá línu og byrji á tveimur atriðum sem ég bara skil ekki.

1. Á Íslandi hefur undanfarið verið einn mesti snjór síðasliðin 12 til 15 ár og veðrið skemmtilegt eftir því, skafrenningur, ekkert skyggni, þungfært og nánast allt sem gott veður þarfnast.

En þá kemur að því ósanngjarna, af hverju kom þetta ekki bara síðasta vetur eða þann næsta, af hverju í fjáranum núna á meðan ég er í útlandinu og get ekkert gert nema að horfa á tölvuna og blóta með tárin í augunum. Ég bara skil þetta ekki, ég hef ekkert gert af mér.

2.Hér í Uppsala hefur snjóað nokkuð oft eftir að ég kom út en þessi frábæra veðrátta hagar sér þannig að t.d. áðan byrjaði að snjóa, á c.a. 1 klst snjóaði 5-6 sm sem er bara býsna gott. Ég náttúrulega bara geðveikt og hugsaði að nú myndi sko koma skíðafæri. Ég ákvað að njóta snjókomunar og fór út að hjóla, ég var ekki búin að vera lengi úti þegar allt í einu bara púff, hætt að snjóa og himinin hér um bil heiðskýr. Þetta gerist alltaf, moksnjóar í smástund og síðan bara ekkert, síðan er spáð hita um helgina og þá fer allt. Grátlegt.

En ég skal ekki rausa um þetta meira. Lilja er á fullu í skólanum og er að vinna í hópaverkefni með dass af stelpum. Hún var orðinn eitthvað pirruð á þessum áfanga eins og sjá má á fyrr pikkuðum færslum og var eitthvað að öfundast út í hvanneyringana sem eru í Köben af því að þar fá þeir að vinna svo mikið saman og geta þar af leiðandi talað íslensku. Hún prófaði síðan að fara til Köben á þriðjudaginn og skoðaði skólann þar með það fyrir augum að skipta kannski en hætti síðan við það og kom til baka á miðvikudagskvöld og ætlar bara að klára hér enda bara fjórar vikur eftir.

Við keyptum okkur kort í ræktina hér um daginn og erum nú á góðri leið með að vera helmössuð og skorin í tætlur, fattaði nýtt tæki þar sem maður á að róa og nú get ég setið þar heillengi og róið og hlustað á ipodinn þar sem snilldarmenn drífa mig áfram eins og Álftagerðisbræður, Baggalútur, Bubbi, Karlakórinn Heimir, Magnús Þór og fleiri eðalsnillingar. Ekki segja svo að ég sé nörd.

En ég á eina sögu til að segja.

Þannig er að voffinn okkar er komin með slit í garnirnar og hringvöðvann, það lýsir sér þannig að tvær festingar af þremur sem halda mjógirninu uppi voru farnar í sundur og því var seinnihluti meltingarfæranna að detta undan og hringvöðvinn orðinn verulega siginn, eða allt aftan við pústgreinina. Ég brá á það ráð að fara með hann á lyftu og festa allt aftur með hosuspennum og nú hangir þetta voða fínt og fer líklega aldrei.

Ég er samt búin að vera með smá áhyggjur af því að það fari að koma gat á púströrið og ákvað því að kanna hvað kostaði að fá nýtt púst undir hann. Þess má geta að ég athugaði á íslandi áður en við fórum út og þar kostaði það 27.000 kr. Ég fór á einhver fimm verkstæði og allir sögðu að þetta kostaði svona 3800-4000 kr (38-40.000 ísk kr). Ég auðvitað bara dem hélt ég myndi spara með því að kaupa það hérna úti. Ég ákvað síðan að endingu að prufa að tala við voffaumboðið hér í Uppsala enda hlytu þeir að eiga eitthvað svona alvöru stöff. Afgreiðslumaðurinn var lengi að reikna saman hvað þetta myndi kosta og talaði við allavega tvo aðra starfsmenn meðan hann var að gera það. Síðan kom sjokkið. Hann sagði mér að þetta kostaði 13.000 sænskar, ég bara ha og bað hann um að skrifa það ef ég væri eitthvað að misskilja en nei nei, hann bara skrifaði 13.000 á blaðið. Ég fór bara að hlæja enda er þetta rúmar 130.000 krónur íslenskar. Fyrir púströr. Hann kvaðst vita a þetta væri dýrt en svona væri þetta bara. Það er greinilegt að það eru ekki bara íslensku umboðin sem eru dýr.

Nú ætla ég að skoða hvað púst kosta í upprunalandi voffans (Þýskalandi) og athuga hvort ég geti ekki bara komið þar við á einhverju verkstæði á leiðinni í alpana og þeir gert þetta fyrir sanngjarnan pening, þetta er nú bara rör.

Að endingu vil ég þakka fyrir öll góðu símtölin sem ég hef fengið og vill ég þakka Hjalta vini mínum sérstaklega þar sem hann á heiðurinn af flestum símtölunum, eða bara öllum.

Hafið það gott

Vaggi

Já fínt!

14. febrúar 2008 klukkan 10:59
Já fínt, já sæææll! Eigum við að ræða það eitthvað?!

Skóli eđa ekki skóli

06. febrúar 2008 klukkan 19:43
Í dag ætlaði ég að hætta í skólanum... þetta er leiðinlegur áfangi og ég á svo erfitt með að vinna hópavinnu eða eignast vini til að gera e-ð með utan skóla, þar sem ennþá er erfitt að tjá sig. Mér finnst ég líka bara vera áhangandi í hópnum, þó að þær vilji ekkert kannast við það, aaarg ...ég vil bara fá fólkið mitt aftur, alla sem ég þekki og get spjallað við- það er félagslega einangrandi að fara svona til útlanda, ég sem hélt að þetta væri ekkert mál.

Vagga tókst að tala mig inná að halda áfram í kúrsinum, það væri nú alltof mikill tími farinn til spillis enda kúrsinn hálfnaður, já ég viðurkenni það.

Þá fékk ég þá flugu í höfuðið að gefa skít í þennan seinni kúrs og fara bara beint heim eftir smá ferðalag eftir páska, það þyrfti ekki að vera svo slæmt, búin að skoða kúrsa í landfræðinni í HÍ sem ég gæti kannski fengið metna í staðinn næsta haust. Þá hringdi síminn... ég er komin með herbergi í Lomma í gegnum skólafélagið fyrir seinni kúrsinn.

Hmm er verið að reyna að segja mér e-ð eða var það tilviljun? NB ég flutti mig til Uppsala af því ég fékk íbúðina þar (ég áleit að það væri meant to be) haha ég er hætt að trúa svoleiðis núna - ég vil ennþá bara fara heim!

/L

Klukkan

Skemmtilegar síđur

Skíđasvćđi sem viđ höfum veriđ á